Fréttasafn

Guðrún Hadda Bjarnadóttir.

Þriðjudagsfyrirlestur: Guðrún Hadda Bjarnadóttir

Þriðjudaginn 9. apríl kl. 17-17.40 heldur Guðrún Hadda Bjarnadóttir, handverks- og myndlistarkona, Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu undir yfirskriftinni Dyngjan – listhús. Aðgangur er ókeypis.
Lesa meira
Leiðsögn fyrir leikskólabörn

Leiðsögn fyrir leikskólabörn

Sunnudaginn 7. apríl kl. 11-12 mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segja börnum á leikskólaaldri frá samsýningunni Sköpun bernskunnar. Á sýningunni má sjá verk eftir listafólkið Gunnar Kr. Jónasson og Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur ásamt verkum nemenda úr leikskólanum Naustatjörn og grunnskólunum Glerárskóla og Naustaskóla. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýningarinnar.
Lesa meira
Valtýr Pétursson, Kompósisjón, 1955.

Styrkur frá Listaverkasafni Valtýs Péturssonar

Listasafninu á Akureyri hlotnaðist sá heiður á dögunum að hljóta styrk úr sjóði Listaverkasafns Valtýs Péturssonar að upphæð 1.500.000, en þann 27. mars síðastliðinn voru 105 ár liðin frá fæðingu Valtýs. Listaverkasafnið var stofnað 2011 til að halda ævistarfi hans til haga. Styrknum skal varið í kaup á listaverkum eftir ungt myndlistarfólk. Tilkynnt verður um kaupin í aprílmánuði, en auk Listasafnsins á Akureyri hlaut Listasafn Íslands einnig styrk úr sjóðnum. Er stjórn sjóðsins þakkað traustið.
Lesa meira
Gleðilega páska!

Gleðilega páska!

Gleðilega páska! Listasafnið verður opið alla páskahátíðina kl. 12-17. Verið velkomin.
Lesa meira
Heiða Björk Vilhjálmsdóttir.

Þriðjudagsfyrirlestur: Heiða Björk Vilhjálmsdóttir

Þriðjudaginn 2. apríl kl. 17-17.40 heldur Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, safnfræðslufulltrúi Listasafnsins á Akureyri, Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu undir yfirskriftinni Kata saumakona: Frá hugmynd til sýningar. Aðgangur er ókeypis.
Lesa meira
Þriðjudagsfyrirlestur: Egill Logi Jónasson

Þriðjudagsfyrirlestur: Egill Logi Jónasson

Þriðjudaginn 26. mars kl. 17-17.40 heldur Egill Logi Jónasson Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Drengurinn fengurinn. Aðgangur er ókeypis.
Lesa meira
Clara de Cápua.

Gestavinnustofan opin á laugardaginn

Brasilíska myndlistarkonan Clara de Cápua hefur dvalið í gestavinnustofu Listasafnsins undanfarnar vikur. Laugardaginn 23. mars kl. 14-17 verður gestavinnustofan opin þar sem Clara sýnir afrakstur vinnu sinnar á Akureyri. Gengið inn úr porti bakvið Listasafnið.
Lesa meira
Fjölskylduleiðsögn á sunnudaginn

Fjölskylduleiðsögn á sunnudaginn

Sunnudaginn 24. mars kl. 11-12 mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segja börnum og fullorðnum frá sýningunum Sena, Steinvölur Eyjafjarðar og Kveikja. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listafólksins. Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir fræðslustarf Listasafnsins.
Lesa meira
Heiðdís Hólm, Eldur, 2023.

Tvær opnanir á laugardaginn

Laugardaginn 23. mars kl. 15 verða tvær sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri, annars vegar sýning Salóme Hollanders, Engill og fluga, og hins vegar sýning Heiðdísar Hólm, Vona að ég kveiki ekki í. Á opnunardegi kl. 15.45 verður listamannaspjall við báðar listakonurnar sem Freyja Reynisdóttir, verkefna- og sýningarstjóri, stýrir.
Lesa meira
Donat Prekorogja.

Þriðjudagsfyrirlestur: Donat Prekorogja

Þriðjudaginn 19. mars kl. 17-17.40 heldur svissneski myndlistarmaðurinn Donat Prekorogja Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Smiling Pebbles. Aðgangur er ókeypis á fyrirlesturinn, sem fer fram á ensku.
Lesa meira