Sköpun bernskunnar 2023

Sköpun bernskunnar 2023
Samsýning
25.02.2023 – 23.04.2023
Salir 10 11

Þetta er tíunda sýningin undir heitinu Sköpun bernskunnar. Hún er sett upp sem hluti af safnfræðslu, með það markmið að gera sýnilegt og örva, skapandi starf barna á aldrinum fimm til sextán ára. Þátttakendur hverju sinni eru skólabörn og starfandi myndlistarmenn. Þátttakendur vinna verk sem falla að þema sýningarinnar, sem að þessu sinni er manneskjan öll

Myndlistarmennirnir sem boðin var þátttaka í ár eru Úlfur Logason og Hlaðgerður Íris Björnsdóttir. Skólarnir sem taka þátt að þessu sinni eru leikskólinn Klappir og grunnskólarnir Lundarskóli, Brekkuskóli og Síðuskóli, sem og Minjasafnið á Akureyri / Leikfangahúsið. 

Leikskólabörnin komu í Listasafnið í nóvember síðastliðnum og unnu sín verk undir stjórn Úlfs Logasonar og Guðrúnar Pálínu Guðmundsdóttur, fræðslufulltrúa og sýningarstjóra. Myndmenntakennarar grunnskólanna sem taka þátt stýra vinnu sinna nemenda, sem unnin er sérstaklega fyrir sýninguna. 

Sköpun bernskunnar hlaut öndvegisstyrk Safnaráðs 2020 til þriggja ára. Af því tilefni verður gefin út vegleg bók, þar sem farið verður yfir verkefnið og sýningarnar. 

Sýningarstjóri: Guðrún Pálína Guðmundsdóttir.