A! Gjörningahátíð

A! Gjörningahátíð
Listasafnið á Akureyri, Ketilhús og víðar, 3. - 6. september 2015

Fjögurra daga alþjóðleg gjörningalistahátíð í samvinnu Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar og leiklistarhátíðarinnar Lókal. Myndlistarmenn sem fremja gjörninga í anda leikhússins og leiklistarfólk sem setur upp verk sem nálgast gjörninga. Hugmyndin er að þessi hátíð verði að reglulegum viðburði á Akureyri með þátttöku listamanna af svæðinu sem og gesta.