Nemendasýningar opnaðar á laugardaginn

Nemendasýningar opnaðar á laugardaginn
Mynd: Þorsteinn Viðar Hannesson.

Laugardaginn 4. maí kl. 15 verða tvær sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri: Nemendasýning Myndlistaskólans á Akureyri, Sjónmennt 2024, og útskriftarsýning nemenda listnáms- og hönnunarbrautar VMA, Bragðarefur.

Sjónmennt 2024

Það dylst engum sem skoðar verk þeirra myndlistarmanna og hönnuða sem brautskráðir eru að loknu þriggja ára námi í sérnámsdeildum Myndlistaskólans á Akureyri að þar eru á ferð sterkir einstaklingar sem taka fag sitt alvarlega og hagnýta sér til fulls þá reynslu sem þeir hafa öðlast.

Sjálfsskoðun er mikilvæg og gerir þá kröfu til nemandans að hann nái að yfirstíga nánd sína og birta viðfangsefni sitt á þann hátt að veki áhuga áhorfandans. Það getur verið snúið, en styrkleiki nemandans felst í hnitmiðaðri, myndrænni framsetningu verkanna og kunnáttu til að miðla henni á sem sterkastan hátt til áhorfandans. Myndræn framsetning verkanna er hluti af hugmyndinni og gegnir lykilhlutverki í að miðla áhrifunum til áhorfandans.

Fagurlistadeild: Guðmundur Guðmundsson, Þorsteinn Viðar Hannesson og Þóra Sigurðardóttir.

Listhönnunardeild: Ása María Skúladóttir, Birgitta Sól Helgadóttir, Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir og Oliwia Morańska.

Bragðarefur

Sýningar á lokaverkefnum nemenda hafa lengi verið fastur liður í starfsemi listnáms- og hönnunarbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri. Sýningarnar eru tvær yfir árið, annars vegar í lok vorannar og hins vegar í lok haustannar. Þetta er tíunda árið í röð sem þær eru haldnar í samstarfi við Listasafnið á Akureyri.

Við undirbúning slíkra sýninga velja nemendur sér verkefni eftir áhugasviði þar sem þeim gefst tækifæri til að kynna sér nýja miðla eða dýpka skilning sinn á þeim sem þeir hafa áður kynnst. Að baki verkanna liggur hugmynda- og rannsóknarvinna og leita nemendur víða fanga í eigin sköpunarferli, allt eftir því hvað hentar hverri hugmynd og þeim miðli sem unnið er með.

Samhliða öðru námi fá nemendur eina önn til að vinna að lokaverkefnum sínum og uppsetningu sýningar í samtali og samvinnu við leiðsagnarkennara og samnemendur þar sem frumkvæði, hugmyndaauðgi og öguð vinnubrögð eru lögð til grundvallar.

Nemendur: Alexandra Kolbrún Gísladóttir, Birna Karen Sveinsdóttir, Elísabet Ýr Jóhannesdóttir, Erik Birkir Ólason, Guðmundur Tawan Víðisson, Hafdís Rún Heiðarsdóttir, Hemmi Ósk Baldursbur, Hrafnkell Myrkvi Þórðarson, Kara Líf Antonsdóttir, Karen Líf Sigurbjargardóttir, Klara Bergmann Hauksdóttir, Margrét Rún Stefánsdóttir, Minna Kristín Óskarsdóttir, Rökkvi Týr Þorvaldsson, Stefán Páll Þórðarson, Svanhvít Líf Bjarnadóttir, Úrsúla Nótt Siljudóttir.