Rím: Verk Ásmundar Sveinssonar og listamanna samtímans
Sýningin Rím opnaði í Listasafninu á Akureyri þann 3. júlí klukkan 15.00.
Sýningin samanstendur af höggmyndum Ásmundar Sveinssonar (1893-1982) og verkum valinna samtímalistamanna, sem kallast á og ríma saman.. Myndhöggvarinn Ásmundur var 20. aldar maður mótaður af 19. öldinni. Hann átti sér mörg viðfangsefni í listinni; mörg þeirra sótt í arfleifðina og þann tíðaranda sem skóp hann, en önnur í framtíðina, tæknina og vísindin. Listamennirnir sem valdir hafa verið til að sýna með Ásmundi hafa glímt við sömu hluti og Ásmundur en í nútímanum og í samhengi við sinn tíma og tíðaranda. Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni, auk Ásmundar Sveinssonar eru Birgir Snæbjörn Birgisson, Davíð Örn Halldórsson, Eirún Sigurðardóttir, Finnur Arnar Arnarson, Guðrún Vera Hjartardóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Kristín Gunnlaugsdóttir, Ólöf Nordal, Pétur Örn Friðriksson og Sara Riel. Tengsl verka Ásmundar Sveinssonar við verk listamanna samtímans endurnýjar innihald þeirra og dýpkar samtal þeirra við umhverfi sitt. Þótt verkin á sýningunni séu mótuð af ólíkum tíðaranda og tæknilegum möguleikum eiga þau sér innra rím sem sækir í sameiginlegan brunn þar sem uppspretta nýrra hugmynda virðist óþrjótandi.
Sýningarstjórar eru Ólöf Kr. Sigurðardóttir og Sigríður Melrós Ólafsdóttir.
Aðalstyrktaraðili sýningarinnar er Norðurorka. Ennfremur styrkir Flugfélag Íslands safnið.
Í mars lítum við yfir langan feril listmálarans Tryggva Ólafssonar, en þá opnar sýning hans í Listasafninu á Akureyri. Tryggvi nam myndlist bæði hér heima og í Kaupmannahöfn og er meðal þekktustu núlifandi myndlistarmanna Íslendinga. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum í fjölmörgum löndum. Verk Tryggva prýða bækur og blöð og hann hefur skreytt byggingar á Íslandi og í Danmörku.
Í bókinni Facing China eru verk einstakrar kynslóðar listamanna sem blómstruðu eftir uppreisnina 1989. Bókin er mjög vegleg og inniheldur greinar eftir Hannes Sigurðsson forstöðumann Listasafnsins á Akureyri, Vigdísi Finnbogadóttur fyrrum forseta og listgagnrýnendurna Li Xianting frá Kína og Robert C. Morgan frá Bandaríkjunum.